Ertu tilbúin/n að komast í þitt sterkasta og besta form?

Ef ég vissi þegar ég byrjaði að lyfta það sem ég veit núna hefði ég komist nær markmiðum mínum margfalt hraðar og gert færri mistök. Reynsla og þekking er mikilvæg og mig langar ekkert meira en að miðla henni áfram til að hjálpa.

Styrkjast, byggja upp vöðva og minnka fitu eru markmið sem ég er sérfræðingur í að ná og get hjálpað þér að ná líka.

Hver er Theodór Már?

Frá því að geta ekki tekið eina armbeygju 16 ára í að vera í 3.sæti í Sterkasti Maður Íslands 28 ára og svo yfir í að landa 3.sæti á Íslandsmótinu í Vaxtarrækt 30 ára, þá hef ég yfir áratuga reynslu af vöðva og styrktaruppbyggingu og einnig fitutapi með áherslu á að viðhalda og byggja upp vöðva.

Hafnfirðingur, Kópavogsbúi, Sandgerðingur eða Suðurnesjamaður en ég flutti um stanslaust í æsku minni en í grunninn er ég bara Íslendingur en bý núna aftur í Hafnarfirði með þrem kisum mínum, þeim Bríet, Eið og Drogo (Skýrður eftir Khal Drogo) og er mikill dýravinur.

Á yngri árum æfði ég handbolta, sund, hnefaleika og körfubolta og var bikarmeistari með drengjaflokk hjá Njarðvík 2011 en fann mig samt best í líkamræktarstöðinni hjá lóðunum þar sem ég bar einn ábyrgð á mínum eigin árangri og enginn annar. “Þú færð út úr því það sem þú leggur í það” er sögn sem ég lærði hratt og eitthvað sem ég lærði að beita svo í margskonar þáttum í lífinu.

Ég er einnig maður með áhuga á ýmsu, önnur áhugamál mín eru fjallgöngur, anime, búa til efni, fatnaður, leiklistir, list og smá hlaup nýlega en brenni fyrst og fremst fyrir því að skemmta og hjálpa fólki, og þá sérstaklega við að komast nær markmiðum sínum á sem skilvirkasta og öruggasta máta.

Auðvitað er aðal markmiðið að kenna hvernig þú kemst nær þínu markmiði og myndar nýjar lífsvenjur til að ná þeim með næringu sem passar og góðri lyftingartækni sem eykur ekki bara öryggi heldur einnig getu ásamt því að byggja upp aga og sjálfstraust.

Það sem er innifalið

  • Í T3X appinu getur þú haft stöðug samskipti við mig um allt sem tengist þjálfuninni.

  • Þú færð aðsniðið æfingarplan að þinni getu og þörfum.

  • Þú færð sérsniðið næringarplan að þér og ef það er eitthvað í því sem hentar ekki eða þú borðar ekki þá breytum við og betrumbætum.

    Besta planið er plan sem þú getur fylgt.

  • Einn dag í viku ert þú með ákveðinn dag sem þú þarft að fylla út stöðumat/check-in í appinu þar sem þú þarft að fylla út spurningarlista, setja inn umbeðnar mælingar og myndir svo ég geti aðstoðað þig sem best.

  • Í appinu fylgja fjöldamörg æfingarmyndbönd við margar æfingar og einnig vill ég að þú takir upp lyftur þínar ef þú hefur tök á og sendir mér svo ég geti kennt og leiðbeint þér betur hvernig þú getur hámarkað tækni, öryggi og einnig með því getu.

Árangursmyndir

Það sem skjólstæðingar hafa að segja

“Þegar ég skráði mig í þjálfun hjá Theodóri vissi ég ekki alveg hvað ég var að gera - nema það að ég þurfti að breyta til og fá smá spark í rassinn (í elskulegri merkingu)

Ég hafði litla sem enga reynslu af líkamsrækt, en Theodór útskýrði allt á mannamáli, með ótrúlegri ró, klókindum og jákvæðni sem er bara smitandi.

Hann hjálpaði mér líka að taka mataræðið í gegn - án þess að dæma mig fyrir að elska kolvetni eins og þau séu fjölskyldumeðlimir.

Þjálfunin með honum er blanda af fróðleik, stuðningi og smá húmor sem gerir allt ferlið miklu skemmtilegra (já, jafnvel þegar maður svitnar á sálarstigi)

Theodór er klár, skilningsríkur og hreinlega frábær þjálfari. Það að skrá mig til hans var ekki bara góð ákvörðun - þetta var upgrade á lífstíl!”

— Helgi Eiríksson

“Theodór er alveg frábær þjálfari, ótrúlega jákvæður, hjálpsamur og alltaf til í að svara spurningum. Hann setti upp skemmtilegt æfingar prógram og matarplan sem var fjölbreytt og gott.

Alltaf mikið pepp í viku check in og heldur manni á réttri braut. Get ekki mælt nógu mikið með þjálfun hjá honum. Takk kærlega fyrir hjálpina.”

— Sigurjón Ingvar

“Ég byrjaði að vinna með Theodóri í maí 2025, þá vó ég 84kg (166cm á hæð) Í morgun (28.08.2025) var þyngdin mín komin niður í 69,6kg.

Theodór er bókstaflega besti þjálfari sem ég gæti óskað mér, Theodór setti upp frábært matarplan fyrir mig og lagaði það alltaf að mínum matarvenjum og þörfum. Hann veit nákvæmlega hvað þarf til að ná árangri og hefur ótrúlega þolinmæði og fagmennsku.

Á þessum fjórum mánuðum hefur hann fylgst með hverju smátriði og þegar ég lenti á “plato” breytti hann planinu strax og þyngdin fór aftur að lækka. Hann er alltaf til staðar, alltaf hvetjandi og gefur manni trú á að þetta sé hægt.

Sjálfsögðu þarf maður að leggja sitt af mörkum: ganga meira, hreyfa sig og sleppa sætindum :) en með Theodór hliðiná er allt ferlið miklu auðveldara og skemmtilegra. Hann er ótrúlega jákvæður, kurteis og hvetjandi. Ég get með sanni sagt að hann er fullkominn þjálfari.”

— Sara

samfélagsmiðlar mínir

Ertu tilbúin/n að komast í þitt sterkasta og besta form?